Foreldrafundurinn

Á fundinum voru ýmis mál rætt.  Ég hendi hér upp því mikilvægasta.

 Á dagskrá er:

 

  • Að fara 1 sinni á mánuði í Ármannsheimilið.
  • Að fara útí fjáröflun - Dósasöfnun o.f.l.
  • Safnað verður fyrir fimleikabolum fyrir stelpurnar og fimleikabúningum fyrir strákana.
  • Að hafa febrúarsýningu í stað jólasýningar og foreldrar kaupa regnhlíf fyrir krakkana sem notast verður við í sýningunni.  Ekki er verra ef regnhlífin væri tví-eða marglit.
  • 6 þreps mót í haust - líkt og mótið síðastliðið haust.
  • Foreldrar! -Látið mig vita ef barnið kemst ekki á æfingar!
Regnhlíf
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Ef börn eru með greiningar/eru erfið væri gott ef foreldrar létu mig vita af því svo ég geti tæklað það á sem bestan máta.  Einnig væri gott að heyra í foreldrum t.d. eftir eða fyrir æfingar þótt það væri ekki nema í smástund til að t.d. spjalla um hvernig gengi og hvað mætti betur fara, eða allavega látið sjá ykkur svo ég gæti gripið í ykkur ef illa gengur hjá ykkar barni=)
 
Fimleikabolir: Ég athugaði á Cheerzone.com hversu litla boli þeir eru með og það minnsta það fyrir krakkana var 1,20 m á hæð svo það dugir kannski ekki fyrir alla. 
 
 
 
- Maríanna 

 


Foreldrafundur - Föstudaginn 30. okt!

Foreldrafundur fimleikahópanna þriggja verður haldinn föstudaginn eftir viku, þann 30. okt. Fundurinn verður í skólanum kl: 20:30 =)

Rætt verður um vetrarstarfið, fimleikaboli/fimleikafatnað, hópaskiptingarnar, mætingar o.f.l.

Vonast til að sjá foreldra allra barna

 

B.Kv Maríanna (6973474)


Hópaskiptingar

Jæja þá eru hópaskiptingarnar tilbúnar! Krakkarnir fá miða heim í dag það sem stendur hvenær hver skal mæta.

A-01:

  • Erika
  • Rannveig
  • Sigrún
  • Arndís
  • Auður
  • Hulda
  • Þorsteinn
  • Cýrus
  • Styrmir
  • Óliver


B-01:
  • Sóley Klara
  • Ilmur Dís
  • Rebekka
  • Katrín
  • Regína
  • Emese
  • Þórdís
  • Krista
  • Sóley Miriam

C-01:
  • Ragnheiður Ólöf
  • Ragnheiður Ósk
  • Birna
  • Bára
  • Andrea Dís
  • Andrea
  • Sirrý
  • Benjamín
  • Jóel
Föstudagar:
  • A-01 = 15:30 - 16:30 
  • B-01 = 13:30 - 14:30
  • C-01 = 14:15-15:30
Mánudagar:
  • A-01 og B-01 = 14:30-15:30 
  • C-01 = 15:15-16:30
Á mánudögum er ekki hægt að hafa A, B og C  tíma vegna þess að salurinn er upptekinn svo að A-01 og B-01 hóparnir verða saman og C-01 eftir þann tíma.  Nokkrar, sem hafa getu til,  í B-01 munu fá að vera með C-01 á mánudögum.  Þessar breytingar byrja á næsta mánudag, þann 19. okt.  
Endilega skrifið í athugasemdir ef eitthvað er.
Kv Maríanna 

Hópaskipting

Undanfarið hefur A-01 hópurinn stækkað mjög mikið og eru þau nú 25 alls. Allt gengur þetta nú ágætlega þótt auðvitað séu vandamál þegar um svo stóran hóp er að ræða. Til þess að allir fái að njóta sín betur þá hefur verið ákveðið að skipta hópnum í tvennt, og jafnvel færa suma í eldri hópinn-sem heitir nú B-01. Allt er þetta í vinnslu núna og stendur til á föstudaginn að klára að meta börnin sem mættu ekki í dag svo hóparnir geti verið sem fyrst tilbúnir, þannig að allir fái nú eitthvað meira við sitt hæfi.

Þá stendur til að hafa 3 hópa;

A-01 = Byrjendur/stutt komnir
B-01 = Aðeins lengra komnir
C-01 = Lengra komnir/gamli B-01 hópurinn

Þessi hópaskipting er því miður aðeins möguleg á föstudögum, því þá getum við byrjað fyrr því skólinn klárast jú fyrr þann daginn. Þá stendur hugsanlega til á mánudögum að B-01 hópurinn skiptist í tvennt og helmingur mætir í A-01 tímann og hinn í C-01 tímann, eða jafnvel ef vel gengur að B-01 og C-01 myndu æfa saman á mánudögum. Óskastaðan væri auðvitað að hafa hópana 3 aðskilda bæði mánudag og föstudag en krakkarnir eru jú í skólanum til 2 og salurinn er upptekin eftir tímana hjá mér. Ef ykkur dettur einhver betri lausn í hug megið þið endilega koma með hugmyndir.

Að lokum vil ég minna foreldra á að skrá börnin sín á skráningarlistann sem liggur í íþróttahúsinu, og þá sérstaklega svo ég hafi nú símanúmer hjá ykkur-t.d.ef eitthvað kæmi uppá eða ég þyrfti að ná í ykkur. Einnig væri gott að ræða örlítið við alla foreldra þeirra barna sem voru að byrja, allavega kynni sig aðeins og börnin svo ég viti nú hvaða andlit tilheyra hverjum, því þetta gengur jú betur ef samskipti foreldra og þjálfara eru til staðar.

Þannig að næsta æfing, föstudaginn 09.okt, mæta allir á venjulegum tíma en eftir það verða hópaskiptingarnar vonandi tilbúnar og þá gef ég upp tímana hérna á síðunni.

Ég vona að þetta stuðli að aukinni vellíðan barnanna og því að þau fái góða skemmtun sem og hreyfingu við sitt hæfi og fái að njóta sín sem best=)

Bestu kveðjur
Maríanna Þórðar.


Breytingar á tímum þann 5.okt!

Næstkomandi mánudag, 5.okt, verð ég í skólanum á Laugarvatni og þar að leiðandi færast máudags-tímarnir yfir á laugardaginn 3.okt.  Tímarnir verða sem hér segir:

  • A-01 (yngri) kl: 12:15-13:15
  • B-01 (eldri) kl: 13:00-14:15

 Kv Maríanna=)

(6973474)


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband